Jeppakort.is

Jeppakort.is

Jeppakort.is er ókeypis kort af Íslandi, sérstaklega ætlað þeim sem ferðast um hálendið, óbyggðir og jökla landsins.

Markmiðið er að gera vandað og skýrt kort sem leggur áherslu á það sem skiptir máli við ferðalög utan alfaraleiða. Við viljum að kortið sé fallegt, auðlesið og gagnlegt, hvort sem ekið er eftir fjallvegum, um snjóþung svæði eða uppi á jöklum.

Jeppakortið: Landmannalaugar og Fjallabak
Landmannalaugar og Fjallabak

Svona notarðu kortið

Í vafranum

Opnaðu kortið í tölvunni eða símanum. Ekkert þarf að setja upp og kortið man hvar þú varst.

Opna í vafra

Í kortaforritum

Bættu kortinu við forrit eins og OruxMaps, AlpineQuest eða Gaia GPS og sjáðu það með ferlunum þínum.

Leiðbeiningar

Án nettengingar

Sæktu allt landið í eina skrá áður en lagt er af stað og notaðu kortið þar sem ekkert samband er.

Sækja kortið

Tvö kort

Jeppakortið: Ísland
Ísland

Jeppakortið

Aðalkortið. Hæðarlínur, fjallvegir og slóðar, skálar og sprungusvæði á jöklum, í fullri nákvæmni.

Ferðakort: Ísland
Ísland

Ferðakort

Til gamans höfum við einnig gert kort í anda Ferðakorts Landmælinga Íslands í 1:750.000. Þetta kort er ekki hugsað til leiðsagnar heldur til yfirsýnar þegar ekið er um landið. Það er aðgengilegt hér á síðunni upp að zoom 11.

Skiptu á milli kortanna efst í vinstra horni kortsins. Mögulega gefum við út fleiri kort síðar, en það er ekki á dagskrá eins og er.